silky terrierdeild REX
22.01.2008 20:50:38 / silkydeild

Terrierdeild REX

Búið er að sameina silky terrierdeildina við Westie deildina og Rat terrierdeildina í eina deild, Terrierdeild REX, www.123.is/terrierdeild

Við vonumst til að ná að halda betur utan um terrierhópinn með þessum hætti og gera þennan öfluga terrier hóp enn öflugri innan REX.

Smám saman mun því þessi síða líða undir lok og allar upplýsingar færast á nýju síðuna.

 Hlökkum til að sjá ykkur í sameiginlegri Terrierdeild.:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 18:51:19 / silkydeild

Gleðilegt ár 2008

Komið þið sælir, silky terrier eigendur, og gleðilegt ár.

Silky terrierdeildin vill þakka ykkur fyrir allar skemmtulegu stundirnar á liðnu ári og vonumst við til að sjá ykkur öll í starfi deildarinnar og félagsins á árinu og vonandi fleiri til.

Núna í upphafi árs bættist einn meðlimur í hópinn. Hún heitir Vaka og er komin mynd af henni ásamt smá pistli um hana í "hundarnir okkar" hér til vinstri á síðunni. Við viljum kvetja ykkur, sem ekki eruð búnir að senda inn mynd af silkynum ykkar, að senda inn mynd ásamt upplýsingum á ilkydeild@visir.is">silkydeild@visir.is.

Fyrir alla þá sem hafa einhverjar spurningar bendum við á að senda póst á ilkydeild@visir.is">silkydeild@visir.is.

----------------------------------------------------------------------------------

Hvolparnir hjá Galdraræktun
undann Dalsmynnis Flóka og Pílu Maríu eru til sölu.
Upplýsingar veitir deildin og komum við þér í samband við ræktandann.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2007 13:04:02 / silkydeild

Jólafrí

\"\" 

Skrifstofa félagsins er farin í jólafrí og opnar aftur 10.janúar 2008.

Við, í Silky terrierdeild Rex, viljum óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Vonandi sjáumst við hress og kát á nýju ári.
Silky terrierdeild Rex

\"\"


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 12:14:39 / silkydeild

Aðventugangan

Það mættu 8 hundar í aðventugönguna seinasta laugardag, 1.desmeber. Þar af voru 4 silky  terrier, Moli, Gola, Þoka og Narnía Eik:haha:
Það var soldið kalt en það kom ekki að sök þar sem allir skemmtu sér vel. Við litum svo inn í nýja gæludýraverslun, Konungur dýranna, sem opnaði í verslunnarmiðstöðinni Sunnumörk þennan sama dag og vöktum við mikkla lukka meðal viðstaddra. Takk fyrir gönguna:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 17:39:48 / silkydeild

Aðventu ganga

Aðventu ganga


1.desember ættlum við að hittast í Hveragerði á gamla tívolí planinu, á móti Eden, og labba hring í bænum.
Við ættlum að hittast kl. 14.00
Allir hundar í taum og muna eftir pokunum og góðaskapinu.

 

Við viljum hvetja ykkur til að mæta svo hægt verði að gera aðventugönguna að árlegum viðburði.0

Frekari upplýsingar á mailið: ilkydeild@visir.is">silkydeild@visir.is

 

---------------------------------------------------------------

Tveir hvolpar eru eftir undan Jóku Anastasíu og Mola.
2 tíkur
Foreldrar sýndir með 1.einkun og meistarastig
upplýsingar hjá ræktanda á mailið ilkyterrier@visir.is">silkyterrier@visir.is

-------------------------------------------------------------

Got hjá Galdraræktun
4 hvolpar, 2 rakkar og 2 tíkur.
Galdraræktun átti besta afkvæmahóp sýningar á haustsýningu 2006


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 16:38:47 / silkydeild

Got hjá Galdra ræktun

Í dag, 12. nóvember, komu í heiminn fjórir silky terrier hvolpar undan Dalsmynnis Flóka og Pílu Maríu.
Komu 2 rakkar og 2 tíkur.
Fyrir frekari upplýsingar og að komast í samband við ræktanda er hægt að hafa samband  við okkur á mailið:
ilkydeild@visir.is">silkydeild@visir.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 15:07:21 / silkydeild

Gangan og hvolpar.

Gangan 20. október var fámenn en góðmenn. Alls mættu 7 hundar ásamt eigendum sínum, þar af tveir silkyar, Moli og Coco Líf.:D
Kerfið hefur verið að stríða okkur og hefur mikið verið hennt út af upplýsingum en á þetta að vera komið allt inn aftur. Vegna þessa hafa myndir frá göngunni tafist enu munum koma inn vonandi sem fyrst.

----------------------------------------------------------------------------------------

 
Þrír af hvolpunum undan Jóku Anastasíu og Mola eru ólofaðir.
Frekari upplýsingar fást á mailið ilkyterrier@visir.is">silkyterrier@visir.is

 

------------------------------------------------------------------------------

Von er á Silky terrier goti hjá Galdra-ræktun.
Foreldrar eru Dalsmynnis Flóki og Píla María.
Ræktunin átti besta afkvæmahóp sýningar á haustsýningu 2006
Frekari upplýsingar veitir deildin á ilkydeild@visir.is">silkydeild@visir.is

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 14:38:00 / silkydeild

Félagsganga

Félagsganga
Laugardaginn 20. október verður félagsganga.
Við ættlum að hittast á stóru bílastæði í Heiðmörk kl. 14.00 og ættlum í klukku tíma göngu. Hafið með ykkur taum, þar sem stígurinn liggur meðfram veginum smá spotta, poka og góðaskapið.

Leiðbeiningar:
Ekið inn í Heiðmörk frá Suðurlandsvegi, Rauðhólar á hægri hönd.
Ekið eftir veginum, yfir einbreiða brú og haldið áfram þar til kemur að bílastæði. Á bílastæðinu stendur kofi.

 

_______________________________________________________

4 hvolpar ólofaðir undan Jóku Anastasíu og Mola.

_______________________________________________________________

Það bætist alltaf reglulega við "hundana okkar" og eru nýjustu hundarnir, Coco Líf og Narnía Eik.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 14:23:40 / silkydeild

Fjölgun

Þann 23.september komu í heiminn 6 hvolpar undan Jóku Anastasíu og Mola.

 

Kynin voru:
4 tíkur og 2 rakkar

Til að fá frekari upplýsingar um gotið og komast í samband við ræktanda,
þá sendið póst á silkydeild@visir.is


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 15:28:48 / silkydeild

Úrslitin

Úrslit úr silky terrier flokkunum eru komin inn.

Óskum ykkur til hamingju með árangurinn á sýningunni:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 15:42:54 / silkydeild

Dagskrá sýningarinnar 15. og 16. september

Þá er dagskráin fyrir sýninguna komin.
Dagskrá.
Laugardagur 15. September.
10:00-10:56 Chihuahua Snögghærður
10:56-12:39 Chihuahua Síðhærður
12:39-13:10 Hlé
13:10-13:38 American Cocker Spaniel
13:38-14:06 Pug
14:06-14:34 Cavalier King Charles Spaniel
14:34-14:48 Papillon
14:48-14:55 Enskur Bulldog
14:55-15:23 Rottweiler
15:23-15:30 Boxer
15:30-15:45 Hlé
15:45 Ungir sýnendur
16:30 Heimilshundar
16:30 Úrslit í tegundarhópum

Sunnudagur 16. September.
11:00-12:31 Silky Terrier
12:31-13:06 West Highland White Terrier
13:06-13:25 Hlé
13:25-15:17 Pomeranian
15:17-15:38 Rat Terrier
15:38-15:52 Beagle
15:52 Hlé
16:12 Úrslit í tegundarhópum
16:45 Úrslit sýningar
 Við viljum biðja alla sýnendur að vera mætta með sína hunda einni klukkustund fyrir auglýstan sýningartíma. A.T.H. sýningartími getur breyst fyrirvaralítið. Við viljum einnig minna sýnendur á að hafa með sér heilsufarsbækur hundanna til að sýna í skráningu. Allir hundar verða vera sprautaðir við Parvo-smáveirusótt.

 

Allir eru velkomnir og kostar 500kr. inn0

 

Mynnum á þjálfanirnar mánudaginn 10. september og miðvikudaginn 12. september kl. 20.00 í Andvara.
Leiðbeiningar inni á www.rexhundar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 19:28:44 / silkydeild

Sýningarþjálfanirnar + leiðbeiningar á staðinn

Sýningarþjálfanir í Andvara, Garðabæ, 3., 5., 10. og 12. september

Leiðbeiningar. Kópavogur, Garðabær.
Keyrir upp Vífilstaðaveg, upp að Vífilsstaðavatni.
Beygt til vinstri upp Elliðavatnsveg.
Þar sjást fljótlega hesthús og reiðhöll á hægri hönd. Það er Andvari.


Að sunnan, Reykjavík.
Ekur Breiðholtsbraut, frá Suðurlandsvegi. Beygir á ljósum upp Vatnsendahvarf og fer upp á Vatnsendaveg. Keyrt er eftir þeim vegi alveg á enda út á malarveg. Þá fljótlega sjást hesthúsahverfi og reiðhöll á vinstrihönd. Það er Andvari.
Frekari upplýsingar S. 897-8802

Óskum eftir sjálfboðaliðum til að vinna á sýningunni.
Áhugasamir hafi samband við skrifstofuna á opnunartímum í síma
533-1310

Stjórn Rex.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 12:17:53 / silkydeild

Sýningarþjálfun 3.september

Við viljum mynna ykkur á fyrstu sýningarþjálfunina fyrir sýninguna 15. og 16. september.

Sýningarþjálfunin fer fram í Reyðhöll Andvara á Kjóavöllum kl. 20:00 mánudagskvöldið 3. september.
Það kostar 500 kr.

 

Blómstrandi dagar heppnuðust vel og koma myndir fljótlega inn á síðuna hjá Rex.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 14:37:51 / silkydeild

Lengdur skráningarfrestur og Blómstrandi dagar :o)

Frá stjórn Rex 

Skrifstofan verður opin 14. 15. 16. 21. og 23. ágúst á milli kl. 19:00 til 20:30, síðasti skráningardagur á sýninguna er 23. ágúst.
Óskum eftir sjálfboðaliðum til að vinna á sýningunni.
Áhugasamir hafi samband við skrifstofuna á opnunartímum í síma
533-1310

Stjórn Rex.

Blómstrandi dagar í Hveragerði.

Laugardaginn 25. ágúst verður Rex með á Blómstandi dögum í Hveragerði. Við ætlum að vera með tegunda kynningu og hvetjum við alla félagsmenn og hunda eigendur að koma og eiga
með okkur góðan dag


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 16:02:57 / silkydeild

Sýningin 15. og 16.september

Það fer hver að verða síðastur að skrá á sýninguna en seinasti skráningardagur er 16.ágúst.

Skrifstofan verður opinn 14, 15 og 16 ágúst milli kl: 19.00 til 20.30 síðasti skráningardagur á sýninguna er 16 ágúst.
Síminn á skrifstofu félagsins er: 533-1310
og er skrifstofan til húsa að Dugguvogi 6 , 2 hæð
(sama hús og Fossberg)

Stjórn Rex.

Hlökkum til að sjá ykkur á sýningunni og að sjálfsögðu eru allir velkomnir0


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill